Hulda Lind
28.03.2008 12:10:55 / lind

Gúdbæ darlings

Hef ákveðið að færa mig um set

http://huldalind.blog.is

verið hjartanlega velkomin á nýju heimasíðuna mína

ta ta Hulda Lind

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 11:52:08 / lind

Sæll......eigum við að ræða þetta eitthvað?

Börnin mín slá alltaf ný og ný norðulandamet í morgunbrjálæði............je minn eini ég hélt ég yrði ekki eldri í morgun...........

Á meðan ég eldaði hafragraut þá hékk Unnur á fótunum á mér öskrandi........sem þýddi að þegar ég labbaði þá dró ég hana á eftir mér, í sömu andrá var Sigga grátandi að biðja mig að halda á sér því ég hafði skammað hana fyrir að hrinda Unni og líka hafði ég skammað Unni fyrir að rífa í hárið á Siggu.............á meðan var Kristjana með æfingarbókina sína............bendandi á hina og þessa stafi og spyrja hvað þeir segðu:s

Síðan fór Sigga aðeins fram...............á meðan eldaði ég hafragrautin! þegar hún kom til baka þá var hún með einhverja ilmsteina sem eiga að fara í bað og slengdi þeim á eldavélahelluna sem var sjóðandi heit...........með þeim afleiðingum að plastpokin sem þeir voru í bráðnaði og hluti af steinunum líka...............á meðan ég var að redda þessu..............þá hljóp Sigga inn á bað og tók bodykrem og makaði á nærliggjandi húsgögn:^).............pissaði síðan á gólfið......þ.e.a.s hún hitti ekki alveg ofan í klósettið.

Þegar grauturinn var kominn á borðið róuðust þær aðeins svo ég fór að huga að mínum morgunmat..................þegar ég leit síðan næst á þær............þá var Unnur með hendurnar á bólakafi í grautnum og hafði mikið fyrir að smyrja honum í hárið á sér.............Siggu fanst þetta hinsvegar vont svo hún var svo almennilega að sulla honum bara á gólfið:$................Kristjana var mjög dugleg að borða.

Fór síðan með Siggu og Kristjönu á leikskólann og skammaðist mín fyrir það hvað ég var glöð í hjartanu mínu að vera laus við þær:^)

Við Unnur fórum þá að kaupa í matinn................ætla ekki með hana aftur á næstunni.

Ég bara spyr er þetta eðlilegt eða er eitthvað að börnunum mínum?

Well............furðulegt ..............en þar sem ég versla í matinn er alltaf svona lyftutónlist í gangi............sem gerir mann brjál................en í dag voru þeir búnir að skipta stefinu út og hljómaði nýja stefið svona eins og í hryllingsmynd...............aftur og aftur.............var að spá í hvort ég væri kanski sú eina sem fyndist eitthvað hryllingslegt við þetta................endilega þið sem versli í COOP FORUM segjið mér hvað ykkur finnst um nýja stefið........................eða væru þið bara til í að staðfesta það við mig að ég sé orðin léttgeðveik á að vera svona lengi heima

Sæll og fínt og sæll og fínt og sæll

kveðja Hulda Lind mú ha ha hah ah ah


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 15:46:47 / lind

Sól sól skín á mig

Það er ægilega fallegt veður hjá okkur núna en ekkert sérlega hlýtt..........fór með stelpurnar á lekplatsen eftir leikskólann .............var með djús og kanelsnúða handa þeim og blaðið handa mér.............við entumst ekki lengi..........en sumarið er á næsta leyti þótt það hafi verið snjór í morgun og ég þurft að skafa bílinn.

Var að kíkja á fargjöld til Íslands í lok Mai og voru þau yfir 100 þúsund fyrir okkur fjölskylduna hjá icelandair en eitthvað aðeins undir það hjá express...............veit ekki hvort það komi tilboð.............ætli ég bíði ekki og sjái.............ég er allavega ekki að fara borga 130 þús fyrir okkur öll..............annars verð ég bara hér og Óli fer einn í mollið á Þórshöfn:lol:

kveðja Hulda Lind

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 16:29:50 / lind

Þórshöfn

Þórshöfn var það heillin....................staðurinn sem Ólafur eiginmaður minn ákvað að verja sumarfríinu okkar á..............ég get ekki beðið, þetta verður djö....stuð.....................við skokkum langanesið á kvöldin og skellum okkur svo í mollið....................og svo eru svo agalega menningarleg kaffihús þarna............úff það er úr svo miklu að velja að ég er komin með valkvíða.

Óli er sumsé að fara að vinna þarna allan Júní mánuð...............ég ætla að vera honum til halds og trausts.......................og svo ætla ég " elsku Hildur mín" að vera  rosalega mikið með þér.............ok díll:)

Annars er mér búið að leiðast í dag....................og mér er enná að leiðast.............mig langar mest upp í rúm að lesa .................bara verst að ég er ekki með neina almennilega bók.......þetta er vonlaus staða................ætla að hætta núna áður en mitt blogg verður kosið leiðinlegast blogg ársins
túrílú
Hulda Lind


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 21:38:27 / lind

Gleðilega Páska!

Erum búin að hafa það alveg ljómandi gott...........fyrir utan að ég er búin að vera veik, með hálsbólgu og hita.......lá í bælinu í sólahring sem var frekar fúlt........vona að ég sé að skána..............panódílið lengi lifi! húrra! húrra! húrraaaaaaa!!!!!

Fengum Theódóru, Magnús og börn í mat á Föstudag og síðan Eydísi og börn í pönnukökukaffi og kvöldmat í dag ...........................ég að sjálfsögðu borðaði ekkert sem kroppurinn minn þolir ekki .............hvorki páskaegg né pönnsur..........ónei............maður er svo ansi stapíll

Mamma hringdi í dag og talaði við Kristjönu.................mamma sagði að hún væri búin að sakna hennar.............dósin kom með yndislegt svar: ég er ekkert búin að sakna þín........ég var búin að gleyma þér en svo hringdir þú allt í einu:lol:
segjum svo að þessi kríli séu ekki hreinskilin.
eigið góða helgi
ta ta Hulda Lind


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 22:36:30 / lind

Hvahhhh.....er enginn að lesa þetta blogg!!!!

Mér líður eins og blóm í eggi þessa dagana...............alveg frábært að hlaða batteríin á Íslandi.

Það er sosum ekkert stórmerkilegt að frétta þessa dagana af okkur.........................stelpurnar braggast vel og Unnur Birna fær leikskólapláss  1 Mai.

Ég er að fara að sækja um skóla sem byrjar í Ágúst.............ætla að klára sjúkraliðann hér, þetta verður voðalega gaman ............núna fyrst er mér farið að hlakka til að takast á við eitthvað annað en bleyjur og barnauppeldi en ég verð að viðurkenna að það var átak að taka ákvörðun um að gera eitthvað annað þar sem ég er búin að vera heimavinnandi í næstum 8 ár ;) og gera aðrir betur.

Annars er leit mín að rétta mataræðinu búið að taka mig 21 ár....................án gríns............þið sem þekkið mig vitið að ég er búin að vera í megrun frá því ég var 12 ára...........ég er búin að fara í alla kúra sem til eru bæði skráða og óskráða og með misgóðum árangri............................ég ætla ekki að segja að ég sé búin að finna endanlega framtíðalausnina hjá mér.....................enda þarf auðvita að laga fyrst og fremst hausinn á svona flækjufótum eins og mér.............hitt kemur svo:)

Í dag þá borða ég ekki hveiti, sykur, ger ásamt heilum helling af fæðu sem "venjulegt" fólk borðar....................þetta er ég búin að gera í 5 daga...............já það er ekki langur tími en ég er alveg að missa mig í hamingju þessa dagana og er ég sannfærð um að kroppurinn minn þoli bara ekki þessar fæðutegundir........................svo verður maður ógeðslega mjór.....................jamm en það er víst bara bónus...........mestu skiptir að líða vel.................ekki satt?

Jæja elskurnar best að fara í háttinn ...................Laugardagur til lukku á morgun og ætla ég að gera hann góðann

hallelúja

p,s ætli ég sé nokkuð komin með geðhvarfasýki:|

kveðja Hulda skulda í landsbankanum




» 1 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 11:18:17 / lind

Nýr mánuður

Afköstin í bloggi eru algjörlega í lágmarki þetta árið...........herre gud!

Jæja en nýr mánuður ...................Mars mánuður hmmmmm er það ekki bara gott?

Við mæðgur komum heim á Sunnudag................búnar að hafa það yndælt á Íslandinu góða............fórum í bíó, leikhús, bláa lónið og sund....................fórum seint að sofa og seint á fætur........getur varla orðið betra:d

Er farin að anda aftur ......................verð að þjóta
ta ta Hulda Lind


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 19:27:21 / lind

Jæja

Tjahhh veit ekki hvað skal segja...................hmmmm kanski bara Febrúarandleysið búið að leysa það fyrra af hólmi:$

Nei nei held að ég viti ástæðu andleysisins þessa dagana..............er sumsé á fimmta degi í magapest!!!!!
hvur elskar ekki að engjast úr magakvölum...............þjóta á klósettið í veikri von um að hafa náð............koma engu niður, vitandi að öll aukakílóin eru á bak og burt þegar risið er úr rekkju:lol:
já þetta er sumsé statusinn................algjört ógeð

Melissa sauð fyrir mig kjúklingasoð og hrísgrjón sem hún lét Óla sækja til sín ( umhumm hann náði ekki hintinu............fannst Melissa bara æðisleg vinkona mín ) og er ég búin að koma því niður.

Jæja en ég hlakka bara voða til að koma til Íslands 6 Mars ............veitir ekki af Íslenska fjallaloftinu

jæja ég ætla að vera betri á morgun
ta ta Hulda Lind

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 11:54:27 / lind

Það rignir

Þjáist enn af Janúarandleysi, enda mánuðurinn ekki á enda.

Ég og Kristjana Lind erum búnar að panta okkur far til Íslands þann 6 Mars til 16, þetta er svokallað húsmæðraorlof og þar sem rúslan mín er svo dugleg að hjálpa til hér á heimilinu þá á hún skilið frí líka:D

jeminn einasti ætla bara að kveðja, ég kem ekki útúr mér setningu....................þetta lagast kanski þegar styttir upp

kveðja Hulda Lind


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 11:43:30 / lind

Janúarandleysi

í gangi þessa dagana er samt að reyna að rífa mig upp og finnast æðislega gaman að taka til og skúra gólf...............það er gaman, það er gaman, það er gaman.

Íslandsferðin var yndisleg í alla staði og fannst mér alveg yndislegt að koma til Ísafjarðar, um leið og ég steig út úr flugvélinni þar kiknaði ég í hnjánum við að sjá þessi rosalegu fjöll..............ótrúlegt að á meðan ég bjó þar tók ég ekkert sérstaklega eftir umhverfinu maður var svo vanur fegurðinni en þegar maður er búin að búa í malmö í næstum 4 ár þar sem engin fjöll eru, engin náttúrufegurð og jarðvegurinn einhvernveginn dauður þá fyllist maður lotningu yfir Íslenskri náttúrufegurð.

Gerði nokkur áramótaheit:

hætta að reykja á árinu:)

taka af mér síðustu 10 kílóin:haha:

stunda meira kynlíf8|

vera duglegri að gera skemmtilega hluti:haha:

byrja aftur í ræktinni:lol:

að öðru leyti er ég fullkomin og þarf ekki að breyta neinu í mínu lífi:haha:

jæja ætla að finna mér eitthvað virkilega djúsí heimilisverk

ta ta Hulda Lind


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 21:28:52 / lind

Ísland gamla Ísland

Jæja smá uppdeit

Erum flutt í nýju íbúðina og líður okkur voða vel hér.

Stelpurnar eru búnar að fá allar pestir sem hægt er að fá td 3 gubbupestir á einum mánuði.

Erum á leiðinni til Ísland á Föstudagskvöldið og förum síðan á Ísafjörð á Sunnudag................þar ætlar Óla að reyna að lækna fólk á meðan ég og Annska vinkona ætlur að selja Ísfirðingum kerti................alveg hrikalega flott

er alveg blank

kveðja Hulda Lind

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:14:19 / lind

Ástand á heimilinu

Jæja smá færsla.

Rússlurnar mínar semsagt Unnur Birna og Sigga Lind eru báðar með hlaupabólu og er Sigga líka með svokallaðar svinkoppor sem þýðir held ég kossageit, hún er með blöðrur og sár í kringum munninn................þetta er alveg bráðsmitandi svo það er lítið um kossa í dag.

Eyjó minn kom í dag og er ég búin að vera í hláturskasti síðan hann kom eins og ég er venjulega þegar hann er nálægt mér..............hann er bara svo ógeðslega fyndinn.

Við erum að flytja á Laugardaginn..............það er semsagt allt á fullu og í fyrsta sinn í langan tíma þá leiðist mér ekki............væri samt alveg til í að hafa stelpurnar frískar en það er fínt að klára þessa hlaupabólu frá

jæja heyrumst seinna

kveðja Hulda Lind


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 08:44:19 / lind

Flutningar

Jeminn eini hvað ég nenni ekki að fara að pakka, var rétt í þessu komin með kassa í hönd og ætlaði að klára hvíta skápinn sem er með öllu glingrinu í .................en allt í einu þá nennti ég ekki...........skrítið mér finnst eins og ég sé nýbúin að þessu:S

Óli minn kom á Föstudagskvöldið og var voða gott að fá hann heim, hann er nú einn sá krúttilegasti sem ég veit um því hann gaf mér eyrnalokka..........og enga venjulega eyrnaloka............nei nei þetta voru maríuhænueyrnalokkar og ég sá að Kristjönu minn þóttu þeir ansi fallegir;) já hann er voðalega sætur við mig.

Óli kemur aftur á morgun, hann fór aftur seinnipart á Sunnudag til Gautaborgar á kúrs.............þetta er alveg orðið passlegt og verð ég alveg að viðurkenna að ég varð pínu abbó þegar hann hringdi í gær nýkomin af steikarstað þar sem hann hafði verið að borða með strákunum..............hinsvegar var ég búin að berjast við rússlurnar sem vildu ekki fara að sofa og fann ég hvernig hornin og halinn uxu á mig.

Eyjó minn kemur 30 okt og ætlar að hjálpa okkur að flytja og halda uppi húmornum á heimilinu það er alveg frábært að hafa hann.............ég hlæ svo mikið þegar hann er ég hann er svo hrikalega fyndin:lol:

Núna er klukkan 10:41 og mig langar að deila því með ykkur að Unnur er að fara að hvíla sig en ég ætla EKKI að fara að taka til og EKKI að fara að pakka...........ég ætla upp í rúm að lesa því akkurat núna nenni ég ekki að gera neitt.................EKKI NEITT

kveðja Hulda Lind

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 08:14:00 / lind

Föstudagur til frægðar

Nýjasta bólutalning..................ta ra ra ramm 110 bólur og held ég að þær verði ekki fleiri, elsku kerlingin var svo aum í nótt því henni klæjaði svo.

Lillurnar eru ekki enn komnar með sínar bólur en við bíðum spenntar..............svo var ég að tala við tengdó sem sagði mér að Óli hefði aldrei fengið bóluna:S

spennandi tímar í hönd

Óli minn kemur í kvöld................ohh ég hlakka svo til..............svo eigum við 6 ára brúðkaupsafmæli á morgun

ta ra Hulda Lind


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 08:00:53 / lind

Vattenkoppor

Þegar Kristjana var að klæða sig í blúndudressið og fara í dansskólann í gær þá fundum við 10 ansi grunsamlegar bólur hér og þar um kroppinn, semsagt HLAUPABÓLA!!!!!!! og Óli á ráðstefnu í Stokkhólmi............kemur á Föstudagskvöld.

Við stelpurnar fylgjumst spenntar með framvindu bólumála og höldum við að Unnur Birna sé að byrja en Sigga er frísk enn sem komið er...................hér er dundað sér við að telja bólur og fjölgar þeim jafnt og stöðugt, í gær var hún fyrst með 10 svo 15 og núna í morgun 56.

hendi kanski inn línu í kvöld..............að minnsta kosti bólutalningu

kveðja frá skvísunum


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15