Hulda Lind
23.10.2007 08:44:19 / lind

Flutningar

Jeminn eini hvað ég nenni ekki að fara að pakka, var rétt í þessu komin með kassa í hönd og ætlaði að klára hvíta skápinn sem er með öllu glingrinu í .................en allt í einu þá nennti ég ekki...........skrítið mér finnst eins og ég sé nýbúin að þessu:S

Óli minn kom á Föstudagskvöldið og var voða gott að fá hann heim, hann er nú einn sá krúttilegasti sem ég veit um því hann gaf mér eyrnalokka..........og enga venjulega eyrnaloka............nei nei þetta voru maríuhænueyrnalokkar og ég sá að Kristjönu minn þóttu þeir ansi fallegir;) já hann er voðalega sætur við mig.

Óli kemur aftur á morgun, hann fór aftur seinnipart á Sunnudag til Gautaborgar á kúrs.............þetta er alveg orðið passlegt og verð ég alveg að viðurkenna að ég varð pínu abbó þegar hann hringdi í gær nýkomin af steikarstað þar sem hann hafði verið að borða með strákunum..............hinsvegar var ég búin að berjast við rússlurnar sem vildu ekki fara að sofa og fann ég hvernig hornin og halinn uxu á mig.

Eyjó minn kemur 30 okt og ætlar að hjálpa okkur að flytja og halda uppi húmornum á heimilinu það er alveg frábært að hafa hann.............ég hlæ svo mikið þegar hann er ég hann er svo hrikalega fyndin:lol:

Núna er klukkan 10:41 og mig langar að deila því með ykkur að Unnur er að fara að hvíla sig en ég ætla EKKI að fara að taka til og EKKI að fara að pakka...........ég ætla upp í rúm að lesa því akkurat núna nenni ég ekki að gera neitt.................EKKI NEITT

kveðja Hulda Lind

 

Jóna skrifaði
þú hefur alla mína samúð með pakkeríið. ætlaru að halda upp á afmælið hennar Unnar?
Hulda Lind skrifaði
Já við ætlum að halda heljarinnar veislu 2 okt og síðan pakka bara niður þegar gestir eru farnir og flytja daginn eftir............nei nei ég ætla bara að knúsa hana í afmælisgjöf

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.